535 – 1000

Nýbyggingar


Stakfell kynnir í sölu, s: 535-1000, [email protected] Glæsilegar íbúðir með garðsvölum við Vallakór 6. Alls 72 íbúða hús. Hér er um að ræða 4ra herbergja enda íbúð á 6.hæð með tveimur stæðum í bílageymslu. Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú herbergi, eldhús, baðherbergi, fataherbergi og stofu. Birt stærð íbúðar er 127.6 fm. Íbúðin afhendist fullbúin og með öllum gólfefnum, flísum og parketi, vönduðum innréttingum og tækjum. Þessi íbúð er með svölum til vesturs. Bílastæði merkt B69 og B70. Sérgeymsla merkt 0047. Íbúðirnar eru einstaklega rúmgóðar með vönduðum innréttingum og góðu skipulagi. Húsið skiptist í tvær byggingar, Vallakór 6a og 6b með tveimur lyftuhúsum. Með öllum íbúðunum fylgir sér bílastæði í lokaðri bílgeymslu.Hver íbúð er með rúmgóðum svölum með möguleika á glerlokun, einnig er hægt er að koma fyrir aðstöðu fyrir húsgögn og fl. Íbúðir á jarðhæð eru með sérafnotarétt á lóð. Mikið útsýni er einkennandi fyrir svæðið.Eignin er staðsett á vinsælum stað í Kópavogi þar sem stutt er í alla þjónustu. Má þar nefna grunnskóla, leikskóla, íþróttaakademíuna, sundlaug svo fátt eitt sé nefnt. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar áramót 2017-18.

Sjá lista af eignum.