535 – 1000

Nýbyggingar


Stakfell kynnir nýtt í sölu: S: 5351000. Glæsilegar og fullbúnar 2ja – 3ja herbergja íbúðir í þessu nýendurbyggða húsi í hjarta Hafnarfjarðar. Íbúðirnar eru frá 48-100 fm og afhendast allar fullbúnar og með vönduðum innréttingum, tækjum og gólfefnum. Þessi íbúð ( 0208) er studíóíbúð með svölum og snýr inn á baklóðina. Skiptist í hol, eldhús, baðherbergi og stofu með svefnkróki og svölum út af til norðurs. Glæsilegar innréttingar og tæki og öll gólfefni, flísar og parket. Í húsinu eru 25 íbúðir á 2.hæð, 3.hæð og á 4.hæð ( penthouse). Á götuhæð eru verslanir og þjónusta, m.a Penninn. Vönduð sameign. Myndavéladyrasími. Við endurbyggingu hússins hefur verið leitast eftir að varðveita útlit og byggingarsögulegt gildi eignarinnar. Hönnun íbúða og frágangs er í höndum Yrki arkitekta. Í húsinu eru átta 3ja herbergja íbúðir og fjártán 2ja herbergja íbúðir, auk tveggja stúdíoíbúða og einnar íbúðar á 2.hæð með vinnustofu á götuhæð ( tvær hæðir). Í húsinu er lyfta og stórar sameiginlegar svalir á 4.hæð. Allar íbúðir eru að auki með sérsvölum. Á lóðinni eru 13 bílastæði merkt þessu húsi sérstaklega en að auki eru fjölmörg önnur bílastæði á þessari lóð. Í kjallara eru sérgeymslur fyrir hverja íbúð og stórt sameiginlegt þvottahús með sérmæli fyrir hverja eign. Verð eru frá kr. 26.9 millj. Sjá nánari skilalýsingu og verð á stakfell.is. Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður lagt á (Greiða skal skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati í eitt sinn af hverri nýbyggingu sem reist er. Nýbygging telst hvert nýreist hús sem virt er til brunabóta,) Sölumenn veita allar upplýsingar í s: 5351000 og sýna eignina eftir nánara samkomulagi.

Sjá lista af eignum.