Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1952
Lyfta
Nei
Fasteignamat
45.850.000 Kr.
Brunabótamat
26.050.000 Kr.
STAKFELL S. 535-1000 KYNNIR Í EINKASÖLU: Falleg 2ja herbergja, 65,3 fm íbúð á jarðhæð með sér inngangi. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Sér þvottahús/geymsla í sameign. Pallur til suðurs fylgir íbúð. Íbúðin afhendist eftir samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða [email protected].
Nánari lýsing: Eignin er skráð 65,3 fm og skiptist í íbúð 50,0 fm og þvottahús/geymsla 15,3 fm.
Komið er inn í anddyri sem tengist öllum rýmum íbúðar.
Eldhús er með hvítri innréttingu með góðu skápaplássi. Ofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa er björt og með gluggum á tvenna vegu.
Baðherbergi er með dökkri innréttingu og flísalagt í hólf og gólf með gráum flísum. Sturta með skilrúmi úr gleri. Salerni er vegghengt og handlaug í borði.
Gólfefni íbúðar er harðparket nema í anddyri og á baðherbergi, þar eru flísar.
Rúmgott sér þvottahús í sameign sem nýtist einnig sem geymsla.
Eigninni fylgir verönd til suðurs.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Stakfell fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
Senda fyrirspurn um eignina